Körfubolti

Stórt tap hjá Helenu og félögum

Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir og félagar í Good Angels Kosice töpuðu í kvöld, 83-65, fyrir franska liðinu BLMA í Euroleague.

Helena fékk ekki mikið að spila fyrir góðu englana og komst því ekki á blað og náði heldur ekki frákasti.

Liðið er í sjötta sæti af átta liðum í C-riðli Evrópukeppninnar.

Helena og félagar lentu í miklum ógöngum á ferðalagi sínu til Frakklands og það hafði hugsanlega einhver áhrif á leik þeirra í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×