Körfubolti

Sundsvall steinlá á útivelli

Jakob og Hlynur.
Jakob og Hlynur. mynd/valli
Svíþjóðarmeistarar Sundsvall Dragons töpuðu frekar óvænt fyrir Södertalje Kings í kvöld. Sigur Södertalje var þess utan sannfærandi, 92-74.

Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Sundsvall með 21 stig. Pavel Ermolinskij skoraði 10 og Hlynur Bæringsson 7.

Helgi Már Magnússon skoraði síðan 11 stig og tók 6 fráköst er lið hans, 08 Stockholm HR, sem vann nauman sigur á Uppsala, 75-76.

Sundsvall er í þriðja sæti en Stockholm því sjötta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×