Körfubolti

Haukur og félagar með nauman heimasigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson. Mynd/Nordicphotos/Getty
Haukur Helgi Pálsson og félagar hans í Assignia Manresa unnu 80-75 sigur á Blancos de Rueda Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Manresa-liðið er nú í 5. sæti deildarinnar með 5 sigra í 10 leikjum en Valladolid er áfram á botninum.

Haukur Helgi er að koma til baka eftir meiðsli sem héldu honum frá síðasta leik og fékk aðeins að spila í 2 mínútur og 10 sekúndur í leiknum. Haukur skaut ekki á körfuna en var með 1 varnarfrákast og 1 stolinn bolta.

Josh Asselin var stigahæstur hjá Manresa með 20 stig og Justin Doellman skoraði 17 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×