Körfubolti

Helena með níu stig í flottum sigri í Meistaradeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir átti sinn besta stigaleik í Meistaradeildinni í vetur þegar hún var með níu stig í 106-66 stórsigri Good Angels Kosice á króatíska liðinu Gospic CO í dag. Good Angels Kosice hefur unnið 6 af 10 leikjum sínum í sínum riðli og á mjög góða möguleika á því að komast áfram

Helena var auk stiganna með 6 fráköst, 2 stoðsendingar og 2 stolna bolta. Hún hafði mest áður skorað fimm stig í einum leik í Meistaradeildinni. Helena spilaði í tæpar fimmtán mínútur í leiknum en hún hitti úr 3 af 5 skotum sínum. 

Helena hitti úr öllum skotum sínum í fyrri hálfleik og var þá með 7 stig á rúmum sex mínútum. Kosice var þegar komið með 27 stiga forskot í hálfleik, 61-34. Helena spilaði síðan í fjórða leikhlutanum  og bætti þá við einni körfu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×