Erlent

Öskuský enn til vandræða í Ástralíu

MYND/AP
Öskuskýið frá eldfjallinu í Chile sem gosið hefur síðustu daga hefur á ný sett flug úr skorðum í Ástralíu. Í síðustu viku þurfti að aflýsa þúsundum ferða og nú er skýið komið aftur inn í ástralska lofthelgi eftir að hafa borist hringinn í kringum jörðina með háloftavindum að því er fram kemur hjá BBC.

Flugvellinum í Adeleide hefur verið lokað auk þess sem tafir hafa orðið á flugi frá Canberra og Sidney í fyrsta sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×