Tvö ár fyrir að slá lögreglumann og stela bíl 3. maí 2011 14:44
Liðlega þrítugur maður var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir rán, þjófnaði fíkniefnabrot og brot gegn valdstjórninni þegar hann sló lögreglumann í andlitið. Við málflutning kom fram að maðurinn, Gunnar Þór Grétarsson, sem á langan sakaferil að baki, hafi verið að leitast eftir því að verða handtekinn þegar hann sló lögreglumanninn en lögregla hafði hann grunaðan um að hafa brotist inn í bíla. Hann sagðist hafa verið undir miklum áhrifum fíkniefna umrædda nótt eftir langar samfelldar vökur. Hann hafi því viljað fá gistingu í fangaklefa en staðæfir að ekki hafi staðið til að skaða neinn. Lögreglumenn sem urðu vitni að árásinni á kollega sinn staðhæfðu hinsvegar að um árás af ásetningi hafi verið að ræða. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að fara inn í bifreið sem var í gangi í Elliðarárdalnum en í aftursæti hennar sváfu tveir ungir menn. Gunnar settist undir stýri og ók af stað stuttan spöl þangað til annar farþeganna sló til hans. Þeir fóru þá út úr bílnum og greip ákærði þá barefli og hótaði mönnunum áður en hann tók bílinn ófrjálsri hendi. Ákærði hefur alls 17 sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum. Þá hefur hann alls 7 sinnum gengist undir dómsáttir vegna brota á lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum. Síðast var ákærði dæmdur 2. júlí 2010 er hann var dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir þjófnað og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlög.
Mest lesið Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Innlent Walz sniðugur veiðimaður sem höfði til karla á miðjum aldri Erlent Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma Innlent Sterkar vísbendingar um falsboð Innlent Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Innlent „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Margir urðu brekkunni að bráð Innlent Ferðamennirnir ófundnir Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Fleiri fréttir Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma „Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Sterkar vísbendingar um falsboð Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Margir urðu brekkunni að bráð Skjálftavirkni meiri en landris hægara Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Ferðamennirnir ófundnir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Sjá meira