Rory McIlroy í fjórða sæti heimslistans - Tiger í 17. sæti Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 20. júní 2011 15:15 Rory McIlroy er í fjórða sæti heimslistans í golfi eftir sigurinn á Opna bandaríska meistaramótinu í gær og hefur hinn 22 ára gamli Norður-Íri aldrei verið ofar á þessum lista. AP
Rory McIlroy er í fjórða sæti heimslistans í golfi eftir sigurinn á Opna bandaríska meistaramótinu í gær og hefur hinn 22 ára gamli Norður-Íri aldrei verið ofar á þessum lista. Luke Donald frá Englandi er enn efstur en hann hefur verið í efsta sætinu undanfarnar þrjár vikur. Landi hans Lee Westwood andar ofaní hálsmálið á Donald því munurinn er aðeins 0,26 stig eftir að Westwood endaði í þriðja sæti á opna bandaríska. Martin Kaymer frá Þýskalandi er þriðji á þessum lista. Tiger Woods heldur áfram að hrapa eins og steinn niður listann en hann er í 17. sæti.10 efstu á heimslistanum: 1. Luke Donald, England 9.06 stig 2. Lee Westwood, England 8.80 stig 3. Martin Kaymer, Þýskaland 7.22 stig 4. Rory McIlroy, Norður-Írland 7.19 stig 5. Steve Stricker, Bandaríkin 6.50 stig 6. Phil Mickelson, Bandaríkin 6.01 stig 7. Matt Kuchar, Bandaríkin 5.67 stig 8. Graeme McDowell, Norður-Írland 5.53 stig 9. Jason Day, Ástralía 5.47 stig 10. Charl Schwartzel, Suður-Afríka 5.24 stig.
Golf Mest lesið Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Damir á leið til Asíu Íslenski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti Bruno til bjargar Enski boltinn Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Enski boltinn „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Ísak hættur með ÍR Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira