Innlent

Keypti vörur fyrir 1,7 milljónir til einkanota

Engin gögn eða fylgiskjöl er að finna í bókhaldi fyrir fangelsið á Kvíabryggju vegna kaupa á eldsneyti fyrir rúmlega 750 þúsund krónur. Eldsneytið var keypt með svokölluðum N1-inneignarkortum, sem forstöðumanninum var óheimilt að nota, þar sem notkun þeirra hafði verið bönnuð í mörg ár.

Þetta er eitt þeirra atriða sem Ríkisendurskoðun hefur gert athugasemdir við eftir að grunsemdir vöknuðu um misferli hjá fyrrverandi forstöðumanni fangelsisins, Geirmundi Vilhjálmssyni. „Þar sem ekki fylgja neinar úttektarnótur frá N1 verður að líta svo á að þessi kaup séu óviðkomandi rekstri fangelsisins," segir Ríkis­endurskoðun. Hún gerir í þessu sambandi athugasemd við að jafnhliða þessum óútskýrðu eldsneytiskaupum hafi hefðbundið olíukort verið notað til kaupa á olíu, alls fimmtán sinnum.

Þá víkur Ríkisendurskoðun að sölu vörubifreiðar í eigu Fangelsismálastofnunar sem staðsett var á Kvíabryggju. Fram kemur að forstöðumaðurinn hafi gefið þá skýringu að bifreiðin væri ónýt þegar átti að selja hana. Í ökutækjaskrá kom hins vegar fram að hún hafði verið seld 17. apríl 2010. Skömmu síðar var vörubifreiðin skoðuð án athugasemda. Ekkert var bókfært í fjármálagögnum fangelsisins um sölu bifreiðarinnar og segir Ríkisendurskoðun brýnt að skoða þennan þátt nánar.

Kaup á hjólbörðum í nafni Kvíabryggju vöktu einnig athygli Ríkisendurskoðunar. Til að mynda voru keypt fjögur sautján tommu dekk, sem ekki passa undir þá ríkisbifreið sem forstöðumaðurinn sagði þau hafa verið keypt undir. Hann kvað þrjú dekkjanna hafa eyðilagst þar sem þau hefðu verið keyrð á of litlu loftmagni. Skýringar vantar á kaupum á tólf dekkjum í nafni fangelsisins.

Kaup á tveimur rafgeymum voru enn fremur óútskýrð, svo og kaup á nokkrum farsímum, sjónauka, blómakassa og glerramma fyrir tæp hundrað þúsund.

Þá gátu starfsmenn á Kvíabryggju ekki staðfest kaup á átta varahlutum í bifreiðar, né heldur smurningu og vinnu við Subaru-bíl. Þeir könnuðust ekki heldur við startkapal og skralllyklasett sem keypt hafði verið á kostnað fangelsisins. Loks hafði Fangelsismálastofnun vakið athygli Ríkisendurskoðunar á óvenjumiklum perukaupum í bifreiðar á tveggja ára tímabili. Þá voru keyptar 79 perur á kostnað Kvíabryggju, auk kaupa á bílalakki og tengdum efnum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×