Erlent

Fimm ára stúlka særð eftir skotárás í London

Fimm ára gömul stúlka slasaðist í gærkvöldi þegar skotið var á hana í Suðurhluta Lundúna. Lögreglan var kölluð að verslun í hverfinu Lambeth og þar fundu þeir stúlkuna ásamt 35 ára gömlum manni sem einnig var særður.

Bæði eru alvarlega slösuð en þó í stöðugu ástandi að sögn lögreglu. Allt er þó enn á huldu um tildrög málsins og leitar lögregla nú að vitnum að atburðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×