Óttast þyngri róður hjá fjölskyldum 7. janúar 2011 04:00 Valdimar Svavarsson oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði Hafnarfjarðar segjast hafa miklar áhyggjur af fyrirhuguðum breytingum og tekjutengingu leikskólagjalda í bænum. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu ákvað meirihluti Samfylkingar og Vinstri grænna í bæjarstjórn að afnema afslátt til einstæðra foreldra og námsmanna vegna vistunar leikskólabarna umfram átta stundir á dag. Hins vegar á að veita afslátt til þeirra tekjulægstu. Breytingin tekur gildi 1. mars en aðferðin við tekjutenginguna hefur ekki verið útfærð. „Þetta veldur óvissu og áhyggjum í hópi foreldra og starfsfólks enda um umtalsverða breytingu á kjörum og afkomu þessara hópa að ræða. Nú þegar fara tekjutengingar vaxandi í skattkerfi og velferðarkerfi landsmanna og róðurinn þyngist sífellt hjá þeim fjölskyldum í Hafnarfirði sem ná að auka við sig vinnu til að ná endum saman," bóka sjálfstæðismenn í bæjarráði sem vilja að óvissunni sé eytt. Fulltrúar meirihlutans segja að nú sé horfið frá því að miða afslátt við ákveðna þjóðfélagshópa. Í staðinn ráði tekjur fjölskyldna hvort þær njóti afsláttarkjara. „Þannig er þeim fjármunum sem til ráðstöfunar eru beint til þeirra sem mest þurfa á þeim að halda. Þetta teljum við réttlátara fyrirkomulag," bóka fulltrúar meirihlutans og upplýsa að verið sé að leggja lokahönd á viðmiðunarreglur. - gar
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sautján ára piltur lést í brunanum á Stuðlum Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Innlent Lýsir stjórnlausum rasisma: „Hvort verður það líkamlegt ofbeldi eða svívirðingar?“ Innlent Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Búin að biðja Jón afsökunar Innlent Fleiri fréttir Eldur í skorsteini í Mávahlíð Þórólfur ætlar ekki fram Lýsir stjórnlausum rasisma: „Hvort verður það líkamlegt ofbeldi eða svívirðingar?“ „Ég hef alltaf haft augun á þessu“ Í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði Búin að biðja Jón afsökunar Stjórnlaus rasismi og spenna í Kraganum Sautján ára piltur lést í brunanum á Stuðlum Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Vara ráðherra við hörmungum ef lykilhringrás í hafinu stöðvast „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Sjá meira