Sepp Blatter: Spænska deildin er sú besta í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2011 23:45 Sepp Blatter, forseti FIFA, með besta knattspyrnufólki heims - Lionel Messi og Mörtu. Mynd/AFP
Sepp Blatter, forseti FIFA, er þeirrar skoðunar að spænska deildin sé sú besta í heimi og að enska úrvalsdeildin geti lært mikið af kollegum sínum í suðri. Blattar rökstuddi þetta með því að átta leikmenn úr spænsku deildinni voru valdir í úrvalslið ársins hjá FIFA og að Spánn sé heimsmeistari í fótbolta. „Spænska deildin hlýtur að vera sú sterkasta í heimi. Allir leikmenn í byrjunarliði heimsmeistaranna spila í deildinni og hún er með hæsta hlutfallið af heimamönnum," sagði Sepp Blatter við CNN World Sport. „Enska úrvalsdeildin er hinsvegar besta markaðssetta deildin í heimi. Enska deildin er góð með mörgum góðum leikmönnum. Það er samt enginn leikmaður hennar í úrvalsliði ársins sem ætti að gefa Englendingum ástæðu til að reyna að læra eitthvað af öðrum deildum," sagði Blatter. Lionel Messi var valinn besti knattspyrnumaður heims en þrír bestu leikmennirnir spila allir á Spáni. „Leo Messi er yndislegur fótboltamaður og góður strákur. Hann er mjög auðmjúkur og er ekki með neinn leikaraskap á vellinum. Messi er ekki leikari," sagði Blatter og bar Messi síðan saman við Diego Maradona. „Messi og Maradona eru báðir hæfileikaríkir leikmenn. Þeir gætu ekki verið betri í fótbolta en munurinn liggur í persónum þeirra. Annar er enn í fótbolta, hógvær og laus við alla sýndarmennsku en hinn fór alltaf í aðra átt," sagði Blatter.
Spænski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira