Portúgalar nálægt því að leita neyðaraðstoðar 24. mars 2011 19:22
Portúgal er nú einu skrefi nær því að leita neyðaraðstoðar eins og Írland og Grikkland hafa gert eftir að ríkisstjórn landsins sagði af sér í gær. Forsætisráðherra Portúgals Jose Socrates sagði af sér í gær eftir að portúgalska þingið hafnaði fjárlagafrumvarpi hans sem gerði ráð fyrir miklum niðurskurði og skattahækkunum. Frumvarpið var síðasta leið ríkisstjórnarinnar til að sýna að Portúgal gæti sjálft unnið sig út úr skuldavanda sínum. Landið er talið þurfa um 70-80 milljarða evru neyðarpakka samkvæmt heimildum Bloomberg fréttaveitunnar. Leiðtogafundur Evrópusambandsins hófst í dag og settu atburðirnir í Portúgal strik í reikninginn en fundinum var ætlað að taka erfiðar ákvarðanir til að yfirvinna skuldakreppu ýmissa evruríkja. Þá mun Spánn kynna nýja efnahagsáætlun á leiðtogafundi Evrópuríkjanna en landið er undir miklum þrýstingi að bæta efnahag sinn og margir telja það næst í röðinni. Atvinnuleysi er helsta áhyggjuefnið á Spáni en þar ríkir nú um 20 prósenta atvinnuleysi, mesta á evrusvæðinu. Þá lækkaði matsfyrirtækið Moodys lánshæfismat bæði spænska ríkisins fyrr í mánuðinum og nú 30 minni banka þar sem það telur ríkið ekki geta staðið við bakið á bönkunum lendi þeir í vanda. Titringurinn í Evrópu hefur umtalsverð áhrif á fjármálamarkaði en krafa á portúgölsk ríkisbréf hefur rokið upp þar sem fjárfestar reyna að losa sig við bréfin.
Mest lesið Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Innlent Rússar lýsa yfir neyðarástandi Erlent Myndi fara stystu leið upp í sveit Innlent Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Innlent Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Innlent Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Erlent Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Erlent Patrik biðst afsökunar Innlent Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Innlent Umdeilt kosningamyndband Höllu „bara í gríni gert“ Innlent Fleiri fréttir Rússar lýsa yfir neyðarástandi Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Andmæla ekki notkun vestrænna vopna í áhlaupi á Rússland Þriðja ungmennið handtekið í tengslum við Swift-tónleikana Maduro lokar X í tíu daga Segir Puigdemont flúinn frá Spáni aftur Ísraelar aftur að samningaborðinu í næstu viku Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Emhoff viðurkennir að hafa haldið framhjá fyrstu eiginkonu sinni Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Trump vill mæta Harris þrisvar í kappræðum Harris þaggaði niður í stuðningsfólki Palestínumanna Leiðtogi sjálfstæðissinna í felum fyrir katalónsku lögreglunni Fregnir af áhlaupi Úkraínumanna í Rússlandi enn óljósar Ætluðu að drepa eins marga og þeir gætu Átta daga geimferð gæti orðið að átta mánuðum Dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að pynta og misnota hunda Segir réttlætanlegt og siðferðilega verjandi að svelta íbúa Gasa Er óviss um friðsamleg forsetaskipti ef Trump tapar Þúsundir gagn-mótmælenda kæfðu boðaðar óeirðir Tónleikum Taylor Swift frestað: „Best að þessu sé slaufað þó að það sé rosalega sárt“ Stjúpsonur norska prinsins handtekinn um helgina Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og brottvísað fyrir árásina á Mette Mikill viðbúnaður vegna mögulegra óeirða í dag Höfuðpaurinn á bakvið árásirnar á Ísrael nýr pólitískur leiðtogi Hamas Walz hjólaði í Trump og Vance á fyrsta kosningafundinum í gær Walz sniðugur veiðimaður sem höfði til karla á miðjum aldri Harris velur ríkisstjóra Minnesota sem varaforsetaefni Slítur þingi eftir að forsætisráðherrann flúði Sjá meira