Erlent

Gaddafi hótar að ráðast á Evrópu

Mynd/AP
Tugþúsundir stuðningsmanna Gaddafi Líbíuleiðtoga komu saman í Trípólí dag í tilefni þess að hundrað dagar eru frá því Atlantshafsbandalagið hóf aðgerðir sínar í landinu.

Gaddafi ávarpaði ekki stuðningsmenn sína en þess í stað var leikin upptaka þar sem leiðtoginn hótar að ráðst á Evrópu. Liðsmenn hans geti valdið miklum sárasauka þegar baráttan myndi færast til Evrópu. Gaddafi sagði að þá verði heimili, skrifstofur og fjölskyldur Evrópumanna löggild skotmörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×