Innlent

Vatnsberinn var ekki í fylgd lögreglu á spítalanum

"Það kom enginn frá fangelsismálastofnun eða lögreglunni. Auðvitað átti lögreglan að vera í fylgd með honum,“ segir Elín Mjöll Þórhallsdóttir. Þór hlaut viðurnefnið Vatnsberinn í tengslum við stórfelld svik á virðisaukaskatti í tengslum við vatnsverksmiðju í Hafnarfirði á tíunda ártug síðustu aldar.
"Það kom enginn frá fangelsismálastofnun eða lögreglunni. Auðvitað átti lögreglan að vera í fylgd með honum,“ segir Elín Mjöll Þórhallsdóttir. Þór hlaut viðurnefnið Vatnsberinn í tengslum við stórfelld svik á virðisaukaskatti í tengslum við vatnsverksmiðju í Hafnarfirði á tíunda ártug síðustu aldar. Mynd/GVA
Þór Óliver Gunnlaugsson, sem afplánar dóm fyrir morð og lögregla lýsti eftir í dag, var ekki í fylgd lögreglumanna eða fangavarða þar sem hann var í læknismeðferð á Landspítalanum. Í tilkynningu frá lögreglu kom fram að Þór væri hættulegur. Tæpum tveimur tímum eftir að Þór yfirgaf spítlann lét hann vita af sér. Undanfarna daga hefur Þór dvalið á meðferðarheimlinu Hlaðgerðarkoti en til stendur að honum yrði sleppt úr fangelsi í haust.

Þór Óliver hét áður Þórhallur Ölver og er einnig oft kallaður Vatnsberinn. Hann á að baki langan sakaferil en hann hefur setið í fangelsi undanfarin ár eftir að hann myrti Agnar W. Agnarsson árið 1999.

Dóttir Þórs, Elín Mjöll Þórhallsdóttir, gagnrýnir vinnubrögð fangelsismálayfirvalda og lögreglu. Hún segir að faðir sinn hafi hvorki verið í fylgd lögreglu eða fangavarða á spítalanum. Þór hafi verið sendur þangað einn með sjúkrabíl úr Hlaðgerðarkoti en þar hefur hann dvalið í um viku. Að sögn Elínar var Þór með mikla verki.

Án eftirlits

Aðspurð hvað amaði að Þór segir Elín: „Hann hefur farið í hjartaþræðingar, hann var með verki fyrir brjósti og einhverja verki í síðu. Hann var ekki eins og hann á að sér að vera. Þeir hafa ákveðið að hringja á sjúkrabíl þannig að eitthvað var að honum. Hann ákvað þetta ekki sjálfur," segir Elín.

„Það kom enginn frá fangelsismálastofnun eða lögreglunni. Auðvitað átti lögreglan að vera í fylgd með honum. Hann hefur alltaf verið í fylgd með lögreglu frá því ég man eftir mér," segir Elín.

Sagður hættulegur

Þór hringdi í dóttur sína fyrr í dag af spítalanum og þangað fór hún klukkan tvö. „Þar sat hann útúrdópaður af morfíni sem hann fékk á sjúkrahúsinu. Ég spurði lækninn af hverju hann væri ekki í fylgd [innskot blaðamanns: lögreglumanna eða fangavarða] og læknirinn vissi ekki um hvað ég var að tala og sagði að hann mætti fara eftir blóðprufu."

Elín undrast af hverju faðir hennar hafi verið einn á sjúkrahúsinu. „Hann var valtur á fótunum og ekki í ástandi til að fara einn ferða sinna. Þeir [innskot blaðamanns: fangelsismálayfirvöld] þekkja hans sögu. Ég hélt að það myndi einhver sækja hann, en svo ráfar hann út í sínu annarlega ástandi," segir Elín sem fór frá föður sínum rétt eftir klukkan þrjú í dag.

Það var síðan á fimmta tímanum í dag sem lögregla lýsti eftir Þór og sagði hann hættulegan. „Hann átti aldrei að vera skilinn eftir einn í þessu ástandandi," segir Elín. Þór gaf sig síðan fram um sexleytið. Hann var í framhaldinu færður í Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.

Sleppur í haust

Elín segir að til standi að sleppa föður hennar í haust og nú sé verið að reyna að undirbúa hann undir það. Hann hafi dvalið um stund á áfangaheimilinu Vernd en undanfarna daga hafi Þór verið í Hlaðgerðarkoti.


Tengdar fréttir

Vatnsberinn fannst á meðferðarheimili

Þór Óliver Gunnlaugsson, hættulegur strokufangi, sem lýst var eftir fyrr í dag er fundinn. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu fannst Þór í Hlaðgerðarkoti sem er meðferðarheimili fyrir áfengissjúklinga. Hann verður fluttur í fangelsið á Skólavörðustíg og væntanlega í framhaldinu á Litla-Hraun.

Vatnsberinn var á spítala þegar hann strauk

Þór Óliver Gunnlaugsson, sem áður hét Þórhallur Ölver og oft er kallaður Vatnsberinn, og lýst er eftir á að baki langan sakaferil eða allt frá árinu 1979. Hann hefur setið í fangelsi frá 1999 fyrir að hafa myrt Agnar W. Agnarsson á heimili sínu við Leifsgötu í Reykjavík.

Lögreglan lýsir eftir hættulegum strokufanga

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir, Þór Óliver Gunnlaugssyni, (áður Þórhallur Ölver Gunnlaugsson). Þórhallur var á höfuðborgarsvæðinu þegar hann strauk að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Hann var klæddur í bláar gallabuxur og var í bláum stuttermabol. Hann er talinn vera hættulegur og afplánar 16 ára fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×