Innlent

Lögreglan lýsir eftir hættulegum strokufanga

Þór Óliver Gunnlaugsson.
Þór Óliver Gunnlaugsson.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir, Þór Óliver Gunnlaugssyni, (áður Þórhallur Ölver Gunnlaugsson). Þórhallur var á höfuðborgarsvæðinu þegar hann strauk að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Hann var klæddur í bláar gallabuxur og var í bláum stuttermabol. Hann er talinn vera hættulegur og afplánar 16 ára fangelsi.

Þeir sem hafa séð til ferða hans eða telja sig vita hvar hann er eru beðnir um að hringja í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×