Erlent

Strauss-Kahn laus úr stofufangelsi

Dominique Strauss-Kahn.
Dominique Strauss-Kahn.
Dominique Strauss-Kahn fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var í dag látinn laus úr stofufangelsi og trygging fyrir lausn hans endurgreidd. Ástæðan er að framburður herbergisþernunnar sem ásakaði Strauss-Kahn um kynferðislega árás á sig, virtist ekki halda vatni.

Hefur þernan margoft logið að lögreglunni og í ljós hefur komið að hún hefur átt samstarf við menn úr undirheimum New York borgar, sem stunda skipulagaða glæpastarfsemi. Til er upptaka af símtali hennar við einn þeirra þar sem hún ræðir um ábata sinn af því að kæra Strauss-Kahn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×