Innlent

Barnaníð í Eyjum: Kallar eftir greinargerð um meðferð málsins

Innanríkisráðuneytið hefur sent ríkissaksóknara bréf þar sem óskað er eftir greinargerð um meðferð embættis ríkissaksóknara og lögreglustjórans á Selfossi á kynferðisbrotamáli sem upp kom í Vestmannaeyjum.

Þetta staðfestir Halla Gunnarsdóttir aðstoðarkona Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra í samtali við fréttastofu. Eins og greint hefur verið frá í fréttum fór lögreglan á Selfossi ekki fram á gæsluvarðhald yfir manni sem sakaður er um að hafa beitt börn kynferðislegu ofbeldi í Vestmannaeyjum fyrir nokkru.

Eftir að gögn málsins bárust ríkissaksóknara óskaði það embætti hins vegar eftir gæsluvarðhaldi og var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald sem síðan var staðfest af Hæstarétti. Þegar maðurinn var settur í varðhald hafði rúmt ár liðið frá því málið kom fyrst inn á borð lögreglu.

Innanríkisráðherra er gert samkvæmt lögum að hafa eftirlit með framkvæmd ákæruvalds og getur hann farið fram á að ríkissaksóknari láti í té gögn og greinargerð um meðferð einstakra mála.


Tengdar fréttir

Meintur barnaníðingur bar við minnisleysi

Karlmaðurinn sem grunaður er um að hafa misnotað þrjár stúlkur kannaðist við yfirheyrslur við að eiga klámfengið efni sem fannst í tölvum á heimili hans en bar við minnisleysi þegar honum voru sýndar myndir af honum misnota eina stúlkuna. Á heimili mannsins fundust tæplega 9 þúsund ljósmyndir og rúmlega 600 hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Brotinn varða allt að 16 ára fangelsi, en stór hluti brotanna er til á upptökum og ljósmyndum.

Gæsluvarðhald yfir meintum barnaníðingi staðfest

Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir meintum barnaníðingi í Vestmannaeyjum. Maðurinn er á fimmtugsaldri og telur saksóknari rökstuddan grun um að hann hafi níðst kynferðislega á stúlkubarni svo mánuðum skipti.

Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir meintum barnaníðingi í Vestmannaeyjum sem er sakaður um að hafa misnotað átta ára gamla stjúpdóttur sína. Hann skal sitja í varðhaldi til 22. júlí næstkomandi. Maðurinn er grunaður um að hafa misnotað þrjár stúlkur.

Lögregla gæti hafa gert mistök í máli barnaníðings

Meintur barnaníðingur í Vestmannaeyjum gekk laus í um það bil eitt ár eftir að myndir sem hann tók af fórnarlambi sínu komust í hendur lögreglu. Hann er grunaður um að hafa níðst á fórnarlambi sínu, átta ára stjúpdóttur sinni, svo mánuðum skipti.

Ólafur Helgi ekki íhugað að segja af sér

Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segist ekki hafa íhugað að segja af sér embætti eftir að Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir meintum barnaníðingi í Vestmannaeyjum.

Pabbi saksóknara deilir á sýslumann

Sýslumaðurinn á Selfossi gagnrýnir að yfirmenn annarra lögregluliða hafi tjáð sig um barnaníðingsmálið í Vestmannaeyjum án þess að hafa aðgang að rannsókn málsins. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar í Reykjavík, sem gagnrýndi Ólaf Helga harðlega í byrjun vikunnar, er faðir saksóknara málsins.

Kallar eftir afsögn sýslumannsins á Selfossi

Fulltrúi í stjórnlagaráði segir að Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, sé ekki fær um að vernda fólk og eigi því að segja af sér þegar í stað.

Staðfestir að óformleg samskipti áttu sér stað

Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, staðfestir að óformleg samskipti hafi átt sér stað á milli embættisins og lögreglu við rannsókn á barnaníði í Vestmannaeyjum. Hún tekur þó fram að ríkissaksóknari hafi ekki haft áhrif á endanlega ákvarðanatöku sýslumannsins á Selfossi varðandi gæsluvarðhald, enda ekki með málsgögn undir höndum. Það er í samræmi við yfirlýsingu Ólafs Helga Kjartanssonar sem hann sendi frá sér í gær vegna málsins og tekur þar fulla ábyrgð á þeirri ákvörðun að krefjast ekki gæsluvarðhalds yfir manninum sem nú er til rannsóknar eftir að myndir og myndbönd af honum að nauðga stjúpdóttur sinni komust í hendur lögreglu. „Settur saksóknari kaus að lýsa því, við flutning kröfunnar fyrir Héraðsdómi Suðurlands, sem mistökum Lögreglustjórans á Selfossi að hafa ekki gert kröfu um gæslu yfir meintum geranda. Þetta gerir saksóknarinn vitandi vits að óformleg samskipti höfðu farið fram milli embættanna um mögulega gæsluvarðhaldskröfu bæði við upphaf máls, þegar upplýsingar um myndefnið lágu fyrir og við ábendingar barnaverndarnefndar Vestmanneyja í mars s.l. Niðurstaða þeirra samskipta var samdóma álit um að ekki skyldi krefjast gæsluvarðhalds. Ábyrgðin á þeirri ákvörðun er hinsvegar lögreglustjórans."

Sýslumaður átti að krefjast gæsluvarðhalds yfir stjúpföðurnum

Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, gagnrýnir Ólaf Helga Kjartansson, sýslumann á Selfossi, og segir að eðlilegt hefði verið að krefjast gæsluvarðhalds yfir manni sem talinn er hafa nauðgað stjúpdóttur sinni í Vestmannaeyjum síðari hluta árs 2009 og fyrri hluta ársins 2010. Að auki eru grunur um að maðurinn hafi misnotað tvær aðrar stúlkur á sama reki en grófustu brotin tók hann upp á myndband. Rætt var við Björgvin kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×