Menning

Íslensk sirkussýning frumsýnd í kvöld

Sirkus Íslands hefur unnið hörðum höndum að nýjustu sýningunni, Ö-Faktor, sem verður frumsýnd í dag.
Sirkus Íslands hefur unnið hörðum höndum að nýjustu sýningunni, Ö-Faktor, sem verður frumsýnd í dag. Mynd/Sirkus Íslands
Sirkus Íslands frumsýnir í kvöld sýninguna Ö-Faktor, og er það þriðja fjölskyldusýningin sem sirkusinn setur upp frá því hann var settur á fót árið 2007, en um sex þúsund manns sáu síðustu sýningu hópsins, Sirkus Sóley.

Sirkusinn samanstendur nánast eingöngu af Íslendingum en hópurinn starfar undir leiðsögn ástralsks sirkuslistamanns, Lee Nelson, sem margir þekkja eflaust betur í dulagervi trúðsins Wally, sem oft skýtur upp nefinu í miðborginni þegar vel viðrar. Lee ætlaði upphaflega að staldra stutt við á landinu, en Ástralinn varð ástfanginn og hefur nú búið hér í fimm ár.

Sýningin Ö-Faktor er sett upp í anda raunveruleikaþátta sem aflað hafa mikilla vinsælda í sjónvarpi víða um heim, en í sýningunni munu sirkuslistamennirnir keppast við að heilla dómara og áhorfendur með ýmsum brögðum.

Sýningargestum verður boðið upp á loftfimleika, áhættuatriði, húllahringi og dans svo dæmi séu nefnd en nánari upplýsingar um sýninguna má nálgast á Facebook síðu sirkussins og Midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.