Innlent

Átján holu fótboltagolfvöllur opnaður

Fótboltagolfvöllurinn er skammt frá tjaldstæðinu í Þorlákshöfn og verður opinn í allt sumar.
Fótboltagolfvöllurinn er skammt frá tjaldstæðinu í Þorlákshöfn og verður opinn í allt sumar. Mynd/Sveinbjörn
„Það hafa stundum verið settar upp þrautir, nokkrar holur, sem hafa verið uppi í nokkra daga, en þetta er fyrsti átján holu völlurinn," segir Sveinbjörn Ásgrímsson hjá Ölfus sporti. Fyrirtækið hefur opnað í Þorlákshöfn fyrsta fótboltagolfvöllinn á landinu.

Fótboltagolf hefur verið stundað í einhverjum mæli hér á landi í nokkur ár, en hefur ekki farið mjög hátt. „Fólk er hægt og rólega að heyra af þessu og þetta vekur alltaf töluverða forvitni. Þetta er afþreying sem allir geta tekið þátt í. Við höfum verið að leyfa fólki að prófa og fáum alltaf jákvæð viðbrögð að leik loknum. Ég hef farið með fólk á öllum aldri, vana og óvana sparkara, og þessir óvönu geta þetta líka."

Sveinbjörn segir þetta eins og á venjulegum golfvelli, brautir séu frá 35 metrum og upp í rúma 100 metra á lengd. „Þær eru par þrír til par fimm. Það eru skilti við hvern teig þar sem stendur hvað brautin er löng og hvað parið er á henni. Svo er teikning af brautinni, en það þarf ýmist að sparka í gegnum eitthvað eða fram hjá einhverju. Svo spila leikmenn bara brautina, telja spörkin og skrá á skorkort. Svo erum við með hlið á öllum brautum sem boltinn þarf að fara í gegnum. Ef fólk sparkar fram hjá hliðinu þarf að fara til baka, sem er ekkert sérstaklega gaman."

Fótboltaþjálfarar hafa sýnt nýja vellinum áhuga að sögn Sveinbjörns, enda hefur tíðkast að íþróttin sé notuð til að brjóta upp æfingar. „En þetta er ekkert bara fyrir fótboltafólk. Þetta er hugsað sem viðbót við afþreyinguna hér á staðnum. Fótboltagolfið er eitthvað sem hægt er að grípa í. Við ætlum að reyna að hafa völlinn opinn eins lengi og við getum í sumar. Þetta er náttúrulega ólíkt þægilegra en venjulegur golfvöllur, það þarf ekki eins mikið viðhald."

thorunn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×