Erlent

Auðmannsdóttir með sprengju um hálsinn

Lögreglan í Sidney í Ástralíu reynir nú að losa sprengju sem er áföst við háls 18 ára gamallar stúlku í einu af auðmannshverfum borgarinnar.

Stúlkan hringdi sjálf til lögreglunnar og tilkynnti um sprengjuna. Búið er að rýma og girða af nærliggjandi hús. Stúlkan tilheyrir einni af auðugustu fjölskyldum Ástralíu og talið er að sprengjan sé liður í fjárkúgun.

Sprengjusveit lögreglunnar vinnur nú við að aftengja sprengjuna en segir að sú aðgerð sé mjög viðkvæm þar sem sprengjubúnaðurinn er flókinn.

Foreldrar stúlkunnar eru komnir á vettvang og bíða átekta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×