Innlent

Víðines til skoðunar undir nýtt fangelsi

Húsnæðið á Víðinesi, þar sem starfrækt var hjúkrunarheimili þar til í september í fyrra.
Húsnæðið á Víðinesi, þar sem starfrækt var hjúkrunarheimili þar til í september í fyrra.
Ríkisstjórnin skoðar nú hvort gamalt húsnæði í ríkiseigu geti nýst undir nýtt fangelsi ef ákveðið verður að reisa ekki fangelsi í einkaframkvæmd eins og hefur verið til umræðu.

Þessi möguleiki var ræddur á fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Einn staður var sérstaklega nefndur til sögunnar sem ákjósanlegt húsnæði undir fangarými: gamalt hjúkrunarheimili á Víðinesi sem þar til í september í fyrra hýsti 38 heimilismenn.

Deilur hafa staðið um það innan ríkisstjórnarinnar hvernig fjármagna skuli byggingu nýs fangelsis. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur talað fyrir því að ríkið fjármagni framkvæmdina en aðrir innan ríkisstjórnarinnar, meðal annars forsætisráðherra, telja að lántaka fyrir slíkri framkvæmd yrði ríkinu of dýr við þessar aðstæður og hafa þess í stað horft til þess að bjóða verkið út þannig að lífeyrissjóðir og einkaaðilar geti tekið þátt í útboðinu.

Þegar umræðan um nauðsyn þess að reisa nýtt fangelsi fór enn einu sinni á flug fyrir skemmstu var gerð athugun á því hvaða húsnæði í eigu ríkisins gæti hugsanlega nýst undir fangarými. Niðurstöður þeirrar athugunar verða notaðar sem leiðarljós um framhaldið, ef hugmyndin um einkaframkvæmd verður slegin út af borðinu.

Málið hefur vafist fyrir ríkisstjórninni um nokkurt skeið og nýlega var ákveðið að taka ekki endanlega ákvörðun um málið fyrr en í ágúst.

- kóp, sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×