Pálmi Rafn Pálmason skoraði eina mark sinna manna í Stabæk er liðið tapaði fyrir Odd Grenland á heimavelli, 3-1, í norsku úrvalsdeildinni í dag. Fjölmargir Íslendingar voru í eldlínunni með liðum sínum í Noregi og Svíþjóð.
Pálmi Rafn lék allan leikinn og skoraði markið á 82. mínútu þegar staðan var 2-0 fyrir gestina. Markið skoraði hann af stuttu færi eftir snarpa sókn Stabæk en þetta var hans sjöunda deildarmark í ár.
Þá vann Viking 2-0 sigur á Sogndal og lagði Birkir Bjarnason upp síðara mark sinna manna undir lok leiksins. Birkir lék allan leikinn fyrir Viking, sem og fyrirliðinn Indriði Sigurðsson.
Stabæk er í áttunda sæti deildarinnar með 33 stig eftir 22 leiki en Viking er í ellefta sætinu með 30 stig.
Þá fóru fram fjölmargir leikir í norsku B-deildinni í dag. Hönefoss vann Sandnes Ulf í miklum Íslendingaslag, 1-0, en þeir Kristján Örn Sigurðsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson léku allan leikinn með Hönefoss.
Steinþór Freyr Þorsteinsson lék allan leikinn með Sandnes Ulf en Ingimundur Níels Óskarsson kom inn á sem varamaður á 75. mínútu.
Atli Heimisson lék allan leikinn með Asker sem vann 1-0 sigur á Bryne og Sverrir Hilmar Gunnarsson gerði slíkt hið sama með liði sínu, Mjöndalen, er liðið vann Strömmen, 2-1.
Guðmann Þórisson var í byrjunarliði Nybergsund sem vann góaðn sigur á Löv-Ham, 3-2, eftir að hafa lent 2-0 undir snemma leiks. Mörk Nybergsund komu öll á síðustu 30 mínútum leiksins.
Sandefjord og Sandnes Ulf eru á toppi deildarinnar með 43 stig hvort en síðarnefnda liðið á þó tvo leiki til góða. Sandnes Ulf hefur þó tapað tveimur leikjum í röð og hefur því toppbarátta deildarinnar opnast upp á gátt.
Hönefoss og Bodö/Glimt eru aðeins tveimur stigum á eftir í næstu tveimur sætum en Mjöndalen og Asker eru bæði um miðja deild. Nybergsund er í fallsæti sem stendur, því fjórtánda af sextán með 21 stig.
Þá var einnig Íslendingaslagur í sænsku úrvalsdeildinni í dag. IFK Gautaborg vann 2-0 sigur á Örebro á útivelli. Hjálmar Jónsson og Theodór Elmar Bjarnason voru í liði IFK en Hjörtur Logi Valgarðsson var á bekknum, rétt eins og Eiður Aron Sigurbjörnsson hjá Örebro.
Í Hollandi kom Jóhann Berg Guðmundsson inn á sem varamaður á 67. mínútu er lið hans, AZ, vann 2-1 sigur á Waalwijk á útivelli. AZ er í öðru sæti hollensku úrvalsdeildarinnar með fimmtán stig, jafn mörg og topplið Twente. Ajax og Feyenoord koma svo næst með fjórtán stig hvort.
Pálmi Rafn skoraði í tapleik
Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Mest lesið





Benoný Breki áfram á skotskónum
Enski boltinn



„Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“
Enski boltinn

Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1
Íslenski boltinn
