Bræðslumenn greiða atkvæði um verkfall 7. febrúar 2011 04:00 Flest stefnir í verkfall starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum. Verði af verkfalli mun loðnuvinnsla stöðvast á lykiltímabili vertíðarinnar.
Samninganefnd AFLs starfsgreinafélags og Drífanda stéttarfélags starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum hefur slitið viðræðum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning. Í kjölfarið verður boðað til atkvæðagreiðslu meðal starfsmanna um verkfall sem gæti hafist um miðja næstu viku. „Við gengum mjög langt í gær og töldum okkar samningstilboð vera þess eðlis að menn myndu bara ljúka málinu. Því var hafnað og það kom gagntilboð sem hvert mannsbarn hefði getað sagt sér að við myndum aldrei ganga að,“ segir Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs. Hann segir samningsvilja SA takmarkaðan og sér finnist sem samtökin séu beinlínis að ögra bræðslumenn til verkfalls. „Það þarf eitthvað mikið að gerast til að það verði ekki verkfall,“ segir Sverrir. Verði af verkfalli mun loðnuvinnsla stöðvast í átta fiskimjölsverksmiðjum á Austurlandi og í Vestmannaeyjum en mikilvægasta tímabil loðnuvertíðarinnar hefst á næstu dögum. Í tilkynningu á vefsíðu SA segir að komi til verkfalls muni þjóðfélagið verða af miklum verðmætum, fyrirtæki fyrir tjóni og starfsmenn þeirra tapa launagreiðslum. SA hafi hafnað kröfum um 30 prósenta launahækkun sem myndi óhjákvæmilega flæða yfir allan vinnumarkaðinn og leiða af sér verðbólguöldu, enn lægra gengi krónunnar, hærri vexti, meira atvinnuleysi, skattahækkanir og enn lakari lífskjör.- mþl
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Milla hætt hjá Willum Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Innlent Svipaður hlátur á öllum upptökunum Innlent Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Sjá meira