Svæfingalæknir í fangelsi fyrir fjársvik Valur Grettisson skrifar 7. febrúar 2011 13:13 Maðurinn var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Fimmtíu og fimm ára gamall svæfingalæknir var dæmdur í 12 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að svíkja rúmlega fjóra og hálfa milljón króna út úr Tryggingastofnun. Svæfingalæknirinn var kærður árið 2007 en brot hans áttu sér stað á árunum 2004 til 2005. Við skoðun sjúkraskráa frá þessum árum kom í ljós að svæfingalæknrinn hafi krafið Tryggingastofnun og sjúklinga um greiðslu fyrir vinnu í mun lengri tíma en sjúkraskrár sögðu til um. Alls framvísaði hann 265 röngum reikningum við Tryggingastofnun á tveggja ára tímabili. Maðurinn vann sem svæfingalæknir hjá barnatannlækni. Vann hann helst við að svæfa börn og fatlaða einstaklinga. Svæfingarlæknirinn lýsti störfum sínum fyrir barnatannlæknin og sagði að nokkur undirbúningur væri nauðsynlegur fyrir aðgerðir, svo sem með því að ræða við foreldra og útvega lyf. Eftir aðgerðina væri haft eftirlit með sjúklingi á meðan hann væri að vakna. Yfirleitt væri fylgst með sjúklingi í um 2 klukkustundir eftir aðgerð, en stundum lengur. Sagðist svæfingalæknirinn oft fara að huga að undirbúningi svæfingar næsta sjúklings á meðan á því eftirliti stæði. Því gæti vel verið að hann hafi innheimt gjald fyrir vinnu við fleiri en einn sjúkling á sama tíma. Dómari telur gögn málsins bera með sér að aðrir svæfingalæknar hafi ekki beitt gjaldskránni með þeim hætti sem maðurinn sagðist hafa gert. Í dómsorði segir að brot svæfingalæknisins sé sérlega ófyrirleitið. Var hann því dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af eru níu mánuðir skilorðsbundnir. Það þýðir að læknirinn þarf að afplána þriggja mánaða fangelsisvist. Honum er einnig gert að endurgreiða Tryggingastofnun hið stolna fé. Maðurinn er búsettur í Svíþjóð.
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent Milla hætt hjá Willum Innlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Stærra eldgos væntanlegt Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Innlent Fleiri fréttir Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Sjá meira