Vill fresta ráðningu Bjarna sem forstjóra Orkuveitunnar 7. febrúar 2011 19:44 Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Mynd/Valli
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur vill að ráðningu forstjóra fyrirtæksins verði frestað. Hann hefur gert athugasemdir við ráðningaferlið en fyrir borgarráði er nú til meðferðar tillaga um að borgarlögmanni verði falið að skoða ráðningarferlið. Bjarna Bjarnasyni, framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun, hefur verið boðið starf forstjóra Orkuveitunnar. Sextíu manns sóttu um starfið en ákvörðun um ráðninguna var tekin stjórnarfundi Orkuveitunnar í dag. Kjartan vill fresta ráðningunni þangað til borgarráð hefur tekið afstöðu til umræddar tillögu. Verði hún samþykkt verður borgarlögmanni gert að skila áliti á því hvort ráðningaferlið samræmist góðum stjórnarháttum sem eðlilegt er að séu viðhafðir í opinberu fyrirtæki. Kjartan segist hafa allt frá því vinna hófst við ráðningu nýs forstjóra lagt áherslu á að stjórn fyrirtækisins taki fullan þátt í ferlinu á öllum stigum málsins. „Meirihluti stjórnar hefur hins vegar verið annarrar skoðunar og látið viðgangast að tveir einstaklingar utan stjórnar annist að mestu leyti val umsækjenda án þess að hafa til þess umboð hennar. Vegna þessara vinnubragða hafa aðeins tveir umsækjendur af sextíu hlotið eðlilega umfjöllun stjórnar og er stjórnarmönnum nú gert að gera upp á milli þeirra. Ekki verður því talið að meirihluti stjórnar hafi í þessu máli staðið undir því lögbundna hlutverki sínu að kynna sér gögn máls nægilega vel til að taka upplýsta og rökstudda ákvörðun. Spurning vaknar einnig um hvort brotið hafi verið á rétti umsækjenda með því að umsóknir þeirra hafi ekki hlotið tilhlýðilega meðferð stjórnar," segir í bókun sem Kjartan lagði fram á stjórnarfundinum í dag.
Tengdar fréttir Framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun boðið forstjórastarf OR Bjarna Bjarnasyni, framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun, hefur verið boðið starf forstjóra Orkuveitunnar. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins en ákvörðun um þetta var tekin stjórnarfundi í dag. Af öllum líkindum verður greint formlega frá ráðningunni á morgun. Sextíu manns sóttu um starfið. 7. febrúar 2011 19:15 Mest lesið Milla hætt hjá Willum Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent Svipaður hlátur á öllum upptökunum Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg Innlent Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Erlent Hafa ekki í hyggju að halda Kúrsk Erlent Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Innlent Tugir þúsunda létust af völdum hita í Evrópu Erlent Fleiri fréttir „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Sjá meira
Framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun boðið forstjórastarf OR Bjarna Bjarnasyni, framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun, hefur verið boðið starf forstjóra Orkuveitunnar. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins en ákvörðun um þetta var tekin stjórnarfundi í dag. Af öllum líkindum verður greint formlega frá ráðningunni á morgun. Sextíu manns sóttu um starfið. 7. febrúar 2011 19:15