Lífið

Portman mátti ekki fljúga til Bretlands

Firth var kjörinn besti leikarinn á Bafta-hátíðinni annað árið í röð. Nordicphotos/Getty
Firth var kjörinn besti leikarinn á Bafta-hátíðinni annað árið í röð. Nordicphotos/Getty

King"s Speech hlaut konunglegar móttökur á bresku Bafta-verðlaunahátíðinni um helgina. Myndin sópaði til sín sjö verðlaunum og Colin Firth var valinn besti leikarinn annað árið í röð.

Kvikmyndin Kings Speech sópaði til sín verðlaunum á bresku Bafta-hátíðinni á sunnudagskvöld. Hún hlaut sjö verðlaun, þar á meðal sem besta myndin og fyrir besta leikarann, Colin Firth.

Samleikarar hans, þau Helena Bonham Carter og Geoffrey Rush, fengu einnig Bafta fyrir bestan leik í aukahlutverkum. Firth vann einnig Bafta á síðasta ári fyrir hlutverk sitt í myndinni A Single Man.

Þessi fimmtugi leikari hefur einnig unnið Golden Globe- og Screen Actors Guild-verðlaunin fyrir hlutverk sitt sem hinn stamandi Bretakonungur Georg VI, auk þess sem hann þykir líklegur til að hreppa Óskarinn 27. febrúar.

Potter-dömurnar Emma Watson og J.K. Rowling stilltu sér upp í tilefni af verðlaunum þeirrar síðarnefndu fyrir framlag sitt til breskrar kvikmyndagerðar.
David Fincher var valinn besti leikstjórinn fyrir myndina The Social Network og Natalie Portman var kjörin besta leikkonan í aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína í The Black Swan.

Portman er barnshafandi og mátti ekki fljúga til Bretlands til að vera viðstödd athöfnina.

Aðalleikarar The Social Network, Jesse Eisenberg og Andrew Garfield, tóku á móti verðlaununum fyrir hönd Davids Finchers.
Besta erlenda myndin var kjörin The Girl With The Dragon Tatto sem er byggð á bók Stiegs Larsson, Karlar sem hata konur.

Myndin Inception hlaut þrenn verðlaun, öll fyrir tæknilega úrvinnslu.

Athygli vakti að mynd Dannys Boyle, 127 Hours, fékk engin verðlaun þrátt fyrir að hafa fengið átta tilnefningar. Þá var leikarinn Sir Christopher Lee heiðraður af Bafta-akademíunni, ásamt J.K. Rowling, höfundi Harry Potter, fyrir framlag sitt til breskrar kvikmyndalistar. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×