Erlent

Skaut sjö og síðan sjálfan sig

Maðurinn skaut meðal annars á lögreglubíl sem veitti honum eftirför.
Maðurinn skaut meðal annars á lögreglubíl sem veitti honum eftirför. MYND/AP
Byssumaður sem skaut sjö til bana í Michigan í Bandaríkjunum í nótt skaut sjálfan sig að lokum í höfuðið. Maðurinn hafði gengið berserksgang í bænum Grand Rapids og myrt fimm fullorðna og tvö börn víðsvegar um borgina.

Lögregla segir að maðurinn hafi þekkt flest fórnarlamba sinna. Eftir mikla leit að manninum og síðar eftirför braust hann inn í hús í úthverfi bæjarins og tók þrjá gísla. Lögreglan sat um húsið en þegar gíslunum tókst að sleppa ákvað maðurinn að taka eigið líf. Ástæða morðanna er enn ekki ljós að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×