Erlent

Rowling útilokar ekki aðra bók um Potter

Jón Hákon Halldórsson skrifar
JK Rowling er höfundur hinna feykivinsælu bóka um Harry Potter. Mynd/ AFP.
JK Rowling er höfundur hinna feykivinsælu bóka um Harry Potter. Mynd/ AFP.
JK Rowling, höfundur bókanna um galdrastrákinn Harry Potter, útilokar ekki að hún muni skrifa fleiri bækur um Potter í framtíðinni. Áður hafði verið sagt að sjöunda bókin, sem þegar er komin út, yrði sú síðasta.

Síðasta myndin um Harry Potter var frumsýnd vestanhafs í gær. Það var við það tilefni sem Rowling sagði að þótt hún hefði í augnablikinu ekki neinar fyrirætlanir um að gera framhald á skrifunum um Potter þá myndi hún „aldrei segja aldrei“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×