Erlent

Látin laus strax í næstu viku

Mál hennar hefur vakið hörð viðbrögð í Bandaríkjunum.
Mál hennar hefur vakið hörð viðbrögð í Bandaríkjunum. Mynd/AP
Casey Anthony, 25 ára bandarísk kona sem var grunuð um að hafa myrt tveggja ára barn sitt, verður látin laus í næstu viku.

Kviðdómur komst á þriðjudag að þeirri niðurstöðu að hún hefði ekki myrt barnið, þrátt fyrir að hafa ekki látið vita af hvarfi þess og logið að lögreglu um tildrög hvarfsins.

Hún var handtekin árið 2008 og hefur setið í gæsluvarðhaldi meðan mál hennar hefur verið til umfjöllunar fyrir dómstóli. Hún var í gær dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa sagt ósatt, en gæsluvarðhaldið og góð hegðun kemur til frádráttar.

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×