Innlent

Rafmagnslaust á Kjalarnesi og í Mosfellsbæ

Mosfellsbær
Mosfellsbær mynd úr safni
Bilun varð í háspennukerfi Orkuveitu Reykjavíkur um klukkan hálftíu í kvöld og er rafmagnslaust á Kjalarnesi og nyrst í Mosfellsbæ.

Vinnuflokkar Orkuveitunnar eru komnir á staðinn og vinna að viðgerð.

Vonast er til að rafmagn verði aftur komið á innan stundar, segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×