Innlent

HIV smit mest á meðal sprautufíkla

Tuttugu og fjórir greindust með HIV smit hér á landi á síðasta ári sem er metfjöldi. Nýr sérútbúinn sjúkrabíll Rauða krossins mun auka þjónustu við sprautufíkla verulega, en smitum meðal þeirra hefur fjölgað mest.

Það var ljóst allt frá því í haust að árið 2010 yrðu nýsmit HIV fleiri en nokkru sinni fyrr hér á landi.

Alls greindust 24 einstaklingar með smit á árinu. Næstmesti fjöldi smita á einu ári er sextán árið 1985, skömmu eftir að veiran kom fram á sjónarsviðið. Fjölgunin síðan þá er meiri en svo að hægt sé að skýra hana með íbúaþróun eingöngu, en að meðaltali greinast um níu manns HIV jákvæð á ári hverju.

Tvö tilfellana eru af óþekktum orsökum, fimm karlar smitast vegna samfara við eigið kyn og 7 gagnkynhneigðir smitast vegna kynmaka. Hluti þeirra mun vera af erlendu bergi brotinn og greinist við komuna til landsins. Flestir nýsmitaðir eru sprautufíklar, alls tíu, eða tvöfalt fleiri en árið áður.

Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, segir ekki fara milli mála að fjölgunina megi því rekja til fíkniefnaneytenda og kennir auknu andvaraleysi um. Embætti hans reyni að vara við hættunni.

„Ef við horfum á árið þá má sjá að fíkniefnaneytendur hlustuðu á þetta og gættu sín betur, " segir Haraldur.

Rauði krossinn hefur í eitt og hálft ár starfrækt teymi sem aðstoðar fíkniefnaneytendur tvisvar í viku, gefur þeim hreinar sprautunálar og býður þeim að farga óhreinum. Á þeim tíma hafa alls um 70 manns leitað til teymisins í 190 skipti, langoftast vegna sprautuskipta. Nú hefur teymið sérútbúið gamlan sjúkrabíl og hyggst fjölga vöktum í fjórar í viku hverri, og lengja þær að auki.

Þór Gíslason, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, segist vonast til að hægt sé að fækka nýsmitum HIV með því að skaffa fíklum hreinar nálar og draga verulega úr skaðanum sem lifnaðarhættir fíkla valda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×