Erlent

Argentískur söngvari skotinn til bana

Facundo Cabral.
Facundo Cabral. Mynd/AP
Argentískur þjóðlagasöngvari, Facundo Cabral, var skotinn til bana Guatemala í gær en hann var einn þekktasti tónlistarmaður Suður- og Mið-Ameríku. Hann var 74 ára gamall.

Cabral var á stuttu tónleikarferðlagi og á leið í flug til Níkaragva þegar ráðist var á bifreið hans. Söngvarinn lést samstundis og þá eru særðust lífverðir hans.

Alvaro Colom, forseta Guatemala, hefur fordæmt ódæðið og sagt að morðingjarnir verði sóttir til saka. Afar há morðtíðni er í Guatemala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×