Innlent

Bandaríkjamenn brutu ekki gegn Íslendingum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigríður Friðjónsdóttir er ríkissaksóknari. Embætti hennar var fengið til að rannsaka hvort Bandaríkjamenn hefðu gerst brotlegir við íslensk lög.
Sigríður Friðjónsdóttir er ríkissaksóknari. Embætti hennar var fengið til að rannsaka hvort Bandaríkjamenn hefðu gerst brotlegir við íslensk lög.
Ekkert bendir til þess að að starfsmenn öryggissveitar sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík hafi brotið íslensk lög né að starfsemi sveitarinnar brjóti í bága við þær heimildir sem sendiráðið hefur á grundvelli Vínarsamningsins um stjórnmálasamband ríkja. Þetta er niðurstaða ríkissaksóknara sem tilkynnt hefur verið innanríkisráðuneytinu.

Forsaga málsins er sú að í fyrrahaust fór þáverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra fram á að ríkislögreglustjóri kannaði starfsemi öryggissveitar sem starfrækt er við sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi. Var þetta gert í kjölfar frétta frá Noregi og Danmörku um að slíkar sveitir hefðu mögulega gerst brotlegar við þarlend lög. Ríkislögreglustjóri óskaði svara frá bandaríska sendiráðinu á Íslandi en í skýrslu embættisins kemur fram að sendiráðið hafi ekki svarað með fullnægjandi hætti. Gat ríkislögreglustjóri því ekki skilað niðurstöðu hvað varðar hugsanleg brot gegn íslenskum lögum. Dómsmála- og mannréttindaráðherra ákvað því að senda embætti ríkissaksóknara málið til þóknanlegrar meðferðar.

Niðurstaða ríkissaksóknara er sú að ekki séu tök til þess að taka málið til áframhaldandi skoðunar og er því meðferð málsins hætt, eftir því sem fram kemur í frétt á vef innanríkisráðuneytisins. Fram kemur að fyrirliggjandi upplýsingar bendi ekki til þess að starfsmenn öryggissveitar bandaríska sendiráðsins hafi brotið gegn íslenskum lögum né heldur fari starfsemi sveitarinnar í bága við þær heimildir sem sendiráðið hefur á grundvelli Vínarsamningsins um stjórnmálasamband.

Þá segir ríkissaksóknari að ekki hafi komið fram neinar upplýsingar sem bendi til þess að starfsmenn sveitarinnar hafi í einstökum tilvikum við eftirlitsstörf brotið gegn íslenskum lögum. Gögn sem lágu fyrir þegar málið barst ríkissaksóknara sýndu ekki fram á að fyrir lægi vitneskja um að refsivert brot hefði verið framið né heldur að grunur hafi verið um slíkt. Sú staða hafi ekki breyst við athugun ríkissaksóknara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×