Innlent

Forsetinn tekur við undirskriftum á morgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson er forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson er forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur ákveðið að bjóða forsvarsmönnum kjósum.is, sem er undirskriftasöfnun vegna Icesave samningana á Bessastaði á morgun.

Óskað var eftir fundi með forsetanum þann 15 febrúar síðastliðinn vegna afhendingar undirskriftalista. Forsetinn bauð svo aðstandendum söfnunarinnar að afhenda listann klukkan þrjú í dag en talsmenn söfnunarinnar tjáðu forsetaskrifstofu að þeir þyrftu lengri tíma til að sannreyna undirskriftirnar. Því var ákveðið að fundurinn færi fram á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×