Erlent

Paul McCartney telur sig fórnarlamb hlerana

Bítillinn fyrrverandi Paul McCartney telur að hann sé eitt af fórnarlömbum hlerana í Bretlandi.

McCartney er sem stendur á tónleikaferðalagi um Bandaríkin en að því loknu mun hann hafa samband við bresku lögregluna til að fræðast nánar um málið.

Í frétt á BBC er haft eftir Mccartney að ef það reynist rétt að sími hans hafi verið hleraður sé það hryllileg árás á einkalíf sitt.

Áhyggjur McCartney koma í framhaldi af því að í ljós er komið að sími Heather Mills fyrrum eiginkona hans var hleraður árið 2001 þegar þau bjuggu enn saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×