Erlent

Hryðjuverk í Pakistan - 41 látinn

Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Myndin tengist ekki fréttinni beint.
41 létust í Punjab í Pakistan í dag þegar sjálfsmorðshryðjuverkamaður sprengdi sig sjálfan í loft upp nærri hofi þar sem Sufi-múslimar héldu upp á þriggja daga helgiathöfn.

Samkvæmt Reuters hafa Talíbanar í Pakistan lýst yfir ábyrgð á hermdarverkinu en Súfi-múslimar eru álitnir villitrúarmenn að mati íslamista. Árásin nú er sú þriðja á þennan fámenna hóp múslima. Þessi árás er sú manskæðasta.

Að sögn Talibana er árásin á múslimana andsvar þeirra við hernaðaraðgerðum pakistanskra yfirvalda gegn Talibönum sem halda til norðvesturhluta landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×