Innlent

Sala tóbaks til unglinga á undanhaldi

Aldrei hafa jafn fáir söluaðilar selt unglingum tóbak í Hafnarfirði frá því núverandi tóbaksvarnarlög voru sett árið 2001. Þetta er leiðir ný könnun í ljós.

Í byrjun febrúar stóð forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar fyrir könnun á því hvort unglingar gætu keypt sígarettur á sölustöðum tóbaks í Hafnarfirði. Í tæp 10% tilfella gátu unglingarnir keypt sígarettur.

Tveir unglingar úr 10. bekk fóru á sölustaði undir eftirliti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar og reyndu að kaupa sígarettur. 2 sölustaðir seldu unglingunum tóbak af 21 mögulegum. Ekki var farið inn á staði með vínveitingaleyfi þar sem tóbak er selt.

Frekari upplýsingar úr könnuninni eru sendar Heilbrigðiseftirliti Kópavogs- og Hafnarfjarðarsvæðisins þar sem unnið verður úr þeim eins og lög gera ráð fyrir. Sölustöðunum er seldu börnunum tóbak verður einnig send ábending frá forvarnarfulltrúa.

Búast má við því að þeir staðir sem seldu börnum tóbak fái áminningu eins og kveður á um í lögum um tóbaksvarnir.

Síðustu misseri hafa söluaðilar sett sér stöðugt skýrari reglur sem tryggja að aldurstakmörk séu virt. Hafnarfjarðarbær hefur aukið tíðni kannana og veitt sölustöðum stöðugt aðhald. Meirihluti sölustaða í Hafnarfirði hefur gert sérstakt samkomulag við forvarnafulltrúann sem miðar að því að leita allra leiða til að koma í veg fyrir sölu tóbaks til barna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×