Innlent

Náðust á öryggismyndavélar

Tveir menn voru handteknir á miðnætti vegna gruns um að hafa brotist inn í raftækjaverslun í Síðumúla í Reykjavík í gærkvöldi.

Öryggismyndavélar í versluninni náðu myndum af þjófunum og samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra þekktust mennirnir af klæðnaðinum.

Þeir gistu fangageymslur og verður líklega sleppt að loknum yfirheyrslum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×