Innlent

Læknafélagið hefur ekki haft samband við Guðbjart

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra Mynd/pjétur
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, segir að ekkert erindi hafi borist frá Læknafélagi Íslands til velferðarráðuneytisins með ósk um fund frá því að hann fundaði síðast með formanni Læknafélagsins síðastliðið haust.

Í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Birnu Jónsdóttur, formanni Læknafélagsins, að ráðherra hafi ekki orðið við ósk hennar um fund til að ræða kjör lækna.

Guðbjartur segir að í ráðuneyti sínu hafi þetta sérstaklega verið athugað eftir að fréttir birtust af því að hann hafi ekki orðið óskum fund og enginn þar kannist við að Læknafélagið hafi óskað eftir slíku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×