Baldur fékk tvö ár óskilorðsbundið 7. apríl 2011 11:22 Baldur Guðlaugsson. MYND/GVA
Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu var í dag dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi og verður söluandvirði hlutabréfa hans í Landsbankanum gert upptækt. Baldur var ákærður fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi þegar hann seldi hlutabréf sín að andvirði 192 milljóna króna í september 2008, rétt fyrir hrun. Baldur átti sæti í samráðshópi um fjármálastöðugleika og hafði því aðgang að upplýsingum sem aðrir höfðu ekki aðgang að um stöðu íslenska bankakerfisins. Héraðsdómur taldi að í málinu teldist sannað að þær upplýsingar sem Baldur bjó yfir hafi verið nægilega sérgreindar og að þær hefðu verið til þess fallnar að hafa áhrif á verð hlutabréfa í Landsbankanum hefðu þær verið opinberar. Fyrir dóminn kom fjöldi vitna, embættismanna sem annarra, sem taldi að þær upplýsingar sem ræddar voru á vettvangi nefndarinnar um fjármálastöðugleika teldust innherjaupplýsingar. Meðal þeirra var kollegi Baldurs, Bolli Þór Bollason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, sem taldi sér ekki fært að selja bréf sín í bönkunum á grundvelli þeirra upplýsinga sem hann bjó yfir.
Mest lesið Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Fleiri fréttir Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Sjá meira