Erlent

Aka ölvaðir en halda vinnunni

Fimmtíu og fimm sænskir lögreglumenn hafa verið dæmdir fyrir ölvunarakstur á síðustu fimm árum. Aðeins einn þeirra hefur misst vinnuna í kjölfar slíks dóms.

Þetta kemur fram í tölum sem sænska dagblaðið Metro hefur tekið saman. Mörg dæmi voru um að lögreglumennirnir lentu í árekstrum eða keyrðu út af undir áhrifum.

Þónokkrir voru dæmdir í fangelsi vegna brotanna. Sá eini sem missti vinnuna var dæmdur vegna fjölmargra annarra brota. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×