Erlent

Leita að raðmorðingja skammt frá New York

Rannsóknarlögreglumenn hafa nú fundið átta lík við ströndina skammt frá New York. Lögreglan í Suffolk sýslu telur að raðmorðingi gangi laus í sýslunni.

Í frétt um málið á vefsíðu BBC segir að fjórar vændiskonur hafi fundist myrtar á þessum slóðum í desember s.l., eitt lík í viðbót skömmu síðar og síðan þrjú lík í viðbót í upphafi vikunnar.

Viðamikil leit stendur nú yfir í Suffolk sýslu að fleiri hugsanlegum fórnarlömbum þessa raðmorðingja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×