Innlent

Vændi verði síður aðgengilegt

Björgvin Björgvinsson, hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Björgvin Björgvinsson, hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Fréttablaðið og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafa efnt til samstarfs um að koma í veg fyrir birtingar hugsanlegra dulinna vændisauglýsinga.

Fréttablaðið hefur undanfarnar vikur gengið ákveðið eftir því að til samstarfsins yrði efnt og var fyrsti fundur af því tilefni haldinn í gær. Niðurstaða fundarins var að lögreglan sendi auglýsingadeild Fréttablaðsins lista yfir atriði sem bentu eindregið til þess að um vændisauglýsingu væri að ræða en grunur leikur á að slíkar auglýsingar hafi verið dulbúnar sem nuddauglýsingar.

Auglýsingadeild blaðsins mun í framhaldinu gera nýjar vinnureglur sem notaðar verða við móttöku smáauglýsinga um nuddþjónustu en þar til þær eru tilbúnar verður tekið fyrir birtingu allra nuddauglýsinga í smáauglýsingum blaðsins.

„Mér finnst það mjög mikið fagnaðarefni að ráðist hafi verið í svona samstarf og vænti þess að það leiði til að vændi verði ekki eins aðgengilegt og það hefur verið," segir Björgvin Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfirmaður kynferðisbrotadeildar.

Vegna ummæla sinna fyrir rúmum tveimur vikum um að Fréttablaðið kynni að vera milligönguaðili um vændi var Björgvin spurður hvort blaðið hefði verið til rannsóknar vegna slíks. „Við höfum velt fyrir okkur hvernig eigi að túlka milligöngu í lögunum en Fréttablaðið hefur aldrei verið til rannsóknar hjá lögreglu vegna milligöngu um vændi."

Jón Laufdal auglýsingastjóri Fréttablaðsins fagnar auknu samstarfi við lögregluna. „Við höfum unnið með lögreglunni lengi á þann hátt að við höfum upplýst hana um kaupendur þessara auglýsinga," segir Jón og bætir við að stefna blaðsins sé að birta ekki auglýsingar sem brjóta í bága við lög eða snúa að ólöglegu athæfi.

Leiðbeiningum lögreglunnar verði bætt við fyrri verklagsreglur og dugi vonandi til að hindra að þeir sem vilji auglýsa ólöglega starfsemi finni smugu til þess. „Við fögnum frekara samstarfi við lögregluna og væntum góðs árangurs af samvinnunni," segir Jón Laufdal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×