Erlent

Mubarak bannað að fara úr landi

Hosni Mubarak Egyptalandsforseta og fjölskyldu hans hefur verið bannað að yfirgefa landið. Ríkissaksóknarinn í Egyptalandi skýrði frá þessu í dag en Mubarak hefur hafst við í sumarhöll sinni í Sharm El Sheikh frá því hann sagði af sér þann ellefta febrúar síðastliðinn.

Mubarak hafði verið við völd í nærri 30 ár en herinn fer nú með öll völd í landinu þar til hægt verður að halda kosningar og samþykkja nýja stjórnarskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×