Erlent

Ung kona lést á Hróarskeldu

Frá Hróaskelduhátíðinni
Frá Hróaskelduhátíðinni
Ung kona lést þegar hún féll þrjátíu og einn metra úr einhverskonar turni á Hróaskelduhátíðinni í Danmörku sem nú stendur yfir. Haft er eftir sjónarvottum í dönskum fjölmiðlum að konan hafi látist samstundis við fallið en hún mun hafa verið í annarlegu ástandi.

Lögreglan í bænum Hróarskeldu staðfestir að konan hafi látist við fallið og beinist rannsókn lögreglu meðal annars að því hvort að frágangi á öryggisbúnaði sé ábótavant.

Önnur stúlka féll einnig af trépalli en hún mun ekki vera í lífshættu. Fjölmargir Íslendingar eru á hátíðinni í ár líkt og undanfarin ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×