Innlent

Tveir í haldi vegna líkamsárásar - spörkuðu í hausinn á fórnarlambinu

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á Akranesi vegna írskra daga sem þar fara fram um helgina. Mikill fjöldi var á Skaganum og þurfti oft að hafa afskipti af fólki með drykkjulæti. Tveir menn eru í haldi lögreglunnar vegna líkamsárásar í miðbænum í nótt. Maðurinn sem varð fyrir árásinni var fluttur til skoðunar á spítala en ekki er vitað um líðan hans. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu spörkuðu mennirnir í hausinn á manninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×