Körfubolti

Dramatískur sigur Loga og félaga - Logi með 10 stig í lokaleikhlutanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson. Mynd/Kristinn Geir Pálsson
Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings eru komnir á mikið skrið í sænska körfuboltanum en þeir unnu sinn fjórða sigur í röð í kvöld þegar þeir unnu dramatískan 101-100 útisigur á LF Basket sem var í þriðja sætinu fyrir leikinn.

Logi Gunnarsson fór fyrir endurkomu Solna í kvöld og skoraði 10 af 25 stigum sínum í fjórða leikhlutanum sem Solna vann 22-15. 

Solna Vikings byrjaði ekki vel og var tólf stigum undir í hálfleik, 49-61. Solna náði að minnka muninn niður í sex stig með góðum þriðja leikhluta og leikurinn var síðan æsispennandi í lokin.

Logi hitti úr 7 af 13 skotum sínum utan af velli og setti niður öll átta vítin sín. Hann var einnig með 3 stoðsendingar og 2 fráköst.

Solna-liðið tapaði 6 af fyrstu 8 leikjum sínum en liðið er nú komið upp í 6. sæti deildarinnar eftir sigur á liðinu í 3. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×