Innlent

Priyanka sækir um ríkisfang hér á landi

Að öðru óbreyttu verður Priyönku gert að yfirgefa Ísland á næstu mánuðum. Hennar gæti beðið erfitt líf í Nepal.Fréttablaðið/vilhelm
Að öðru óbreyttu verður Priyönku gert að yfirgefa Ísland á næstu mánuðum. Hennar gæti beðið erfitt líf í Nepal.Fréttablaðið/vilhelm
sigurður örn Hilmarsson
Velunnarar Priyönku Thapa hyggjast gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda henni hér á landi. Útlendingastofnun synjaði henni um dvalarleyfi í vikunni. Priyanka er 23 ára gömul nepölsk stúlka en í Nepal bíður hennar ókunnur fertugur karlmaður sem hefur keypt hönd hennar af fátækri fjölskyldunni. Ákveðið hefur verið að sækja um íslenskan ríkisborgararétt fyrir hana.

„Við ætlum að leita allra leiða til að gera henni kleift að vera hér á landi áfram,“ segir Sigurður Örn Hilmarsson, lögmaður Priyönku. „Við teljum aðstæður hennar vera svo sérstakar að hún eigi í fyrsta lagi rétt á því að fá dvalarleyfi hér en jafnframt að þær réttlæti það að hún fái einfaldlega ríkisborgararétt frá Alþingi.“

Almennt er gerð krafa um að umsækjendur um ríkisborgararétt hafi búið hér á landi í sjö ár og hafi dvalarleyfi frá Útlendingastofnun. Ljóst er að Priyanka uppfyllir ekki þau skilyrði en fólk í hennar stöðu getur komist hjá þeim með því að sækja um ríkisborgararétt til Alþingis. „Þá setur Alþingi einfaldlega lög um að einhverjir tilteknir einstaklingar hljóti ríkisfang en það hefur Alþingi gert tvisvar á ári undanfarna áratugi,“ segir Sigurður Örn.

Priyanka hefur starfað sem barnfóstra hjá fjölskyldu á Suðurnesjum undanfarin misseri. Fjölskyldan hefur tekið ástfóstri við Priyönku og boðið henni að búa áfram hjá sér. Priyanka hefur auk þess stundað nám við háskólabrú Keilismeð mjög góðum árangri, en hún útskrifast þaðan í maí.

Priyanka er óttaslegin um framtíðina en að öllu óbreyttu verður henni gert að yfirgefa Ísland á næstu mánuðum. Útlendingastofnun úrskurðaði að Priyanka uppfyllti ekki skilyrði um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og taldi ekki sannað að hennar biði hjónaband sem hún yrði neydd í.

Priyanka, fjölskylda hennar og lögmaður afla nú frekari sönnunargagna um stöðu hennar í Nepal. Líklegast verður farið fram á að málið verði tekið upp aftur af hálfu Útlendingastofnunar.

Ása Guðný Ásgeirsdóttir mannfræðingur hefur rannsakað stöðu kvenna í Nepal. Hún segir að Pryönku gæti beðið erfitt líf í Nepal. Landið sé meðal þeirra fátækustu í heimi og þar njóti konur almennt lítilla réttinda.

Á fimmtudag var stofnaður hópur á Facebook til stuðnings Pryönku en á tíunda tímanum í gærkvöldi höfðu rúmlega 6.000 manns gengið í hópinn.

magnusl@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×