Erlent

Tveir Norðmenn deila með sér 500 milljónum - Ofurtalan kom upp

Það voru tveir heppnir Norðmenn sem deildu með sér fyrsta vinningnum í Víkingalóttinu. Ofurtalan kom í pottinn og voru því tæplega 500 milljónir í pottinum.

Tveir Norðmenn voru með allar sex tölurnar réttar og deila þeir því með sér upphæðinni, og fær hver um sig um 245 milljónir króna.

Einn Íslendingur var með 4 jókertölur réttar í röð og fær hann um 100 þúsund krónur í sinn hlut.

Tölurnar í kvöld voru: 10 - 12 - 15 - 40 - 42 - 45

Bónustölurnar voru 13 og 25.

Ofurtalan var 42.

Jókertölurnar voru: 8 - 9 - 3 - 0 - 5




Fleiri fréttir

Sjá meira


×