Erlent

Þóttist vera krabbameinslæknir og áreitti konur

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Hinn sextíu og þriggja ára gamli Michail Sorododsky játaði í gær að hafa nauðgað einni konu og áreitt kynferðislega um tuttugu konur sem leituðu til hans þegar hann þóttist vera krabbameinslæknir.

Michail framdi brot sín í New York borg frá árinu 1995 en málið hefur vakið mikla reiði vegna þess að falslæknirinn fékk aðeins sex ára langan fangelsisdóm, en hefði að margra mati átt að dæmast í 25 ára fangelsi fyrir nauðgunina eina.

Hann má hinsvegar búast við hrinu af einkamálsóknum þegar hann verður látinn laus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×